Iðgjald í lífeyrissjóði

Til frádráttar á móti tekjum einstaklinga má færa iðgjald þeirra í lífeyrissjóð samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Hámarksfrádráttur er 4% af iðgjaldsstofni. Einnig má færa til frádráttar allt að 4% vegna iðgjalda samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd, þ.e. iðgjald í séreignarsjóð, sem greitt er til lífeyrissjóða eða starfstengdra eftirlaunasjóða. Skilyrði frádráttar er í báðum tilvikum að iðgjöld séu greidd reglulega.

Sömu reglur gilda hvort heldur um er að ræða launþega hjá öðrum eða mann sem vinnur við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og heimilt er að halda iðgjaldinu utan staðgreiðslu að uppfylltum sömu skilyrðum.

Hér er að finna lista yfir lífeyrissjóði sem hafa heimild til að taka á móti iðgjöldum sem eru frádráttarbær.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Frádráttur lífeyrissjóðsiðgjalds frá tekjum utan atvinnurekstrar - 4.-5. tölul. A-liðar 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt

Einu sinni var...

Heimill frádráttur vegna iðgjalds í séreignarsjóð var 6% á tímabilinu 1. mars 2009 - 1. október 2010 og  2% á tímabilinu 2012 - 1. júlí 2014. 

Ítarefni

Frádráttur lífeyrissjóðsiðgjalds í séreignarsjóð frá tekjum utan atvinnurekstrar á tímabilinu 1. mars 2009 - 1. október 2010 - bráðabirgðaákvæði XXVI laga nr. 90/2003, um tekjuskatt

Frádráttur lífeyrissjóðsiðgjalds í séreignarsjóð frá tekjum utan atvinnurekstrar á tímabilinu 2012 - 1. júlí 2014 - bráðabirgðaákvæði XLIX laga nr. 90/2003, um tekjuskatt

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum