Fréttir og tilkynningar


Aðgerðaráætlun gegn peningaþvætti

16.9.2019

Nýverið birti FATF (Financial Action Task Force), skýrslu um stöðu Íslands sem lýtur að laga og regluverki og er niðurstaða hennar sú að af 40 tilmælum FATF séu 28 uppfyllt eða að mestu leyti uppfyllt, 11 séu uppfyllt að hluta og ein tilmæli teljist óuppfyllt.

Aðgerðir sem Ísland hefur unnið að frá áramótum sem snúa meðal annars að regluverki um raunverulega eigendur, frystingu fjármuna, útgáfu fræðsluefnis og fræðslufundi, mæta að miklu leyti þeim tilmælum sem út af standa.

Með þessum aðgerðum er það mat stjórnvalda að sá þáttur athugasemdanna sem snýr að laga- og regluverki sé kominn í viðunandi horf.

Nú stendur yfir úttekt á skilvirkni þeirra aðgerða sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til, sem eru meðal annars:

  • stofnun nýs eftirlitsaðila innan embættis ríkisskattstjóra sem hefur eftirlit með þeim aðilum sem ekki lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins, og tryggja þannig að allir tilkynningarskyldir aðilar samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka lúti eftirliti
  • umfangsmikil laga- og reglusetning, meðal annars ný heildarlög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lög um skráningu raunverulegs eiganda, lög um frystingu fjármuna, reglugerð um áhættusöm ríki, reglugerð um áreiðanleikakönnun og reglugerð um millifærslu fjármuna
  • fjölgun stöðugilda við eftirlit, rannsóknir og saksóknir á málum sem tengjast peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
  • umfangsmikil útgáfa fræðsluefnis, bæði af hálfu eftirlitsaðila og stýrihóps um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
  • fræðslufundir sem stjórnvöld hafa haldið fyrir tilkynningarskylda aðila og almannaheillafélög
  • innleiðing nýs kerfis hjá skrifstofu fjármálagreininga lögreglu vegna móttöku tilkynninga um grun um peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka
  • útgáfa áhættumats um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
  • aukið samstarf og samhæfing stjórnvalda í gegnum stýrihóp um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og samstarfssamninga
  • aukið áhættumiðað eftirlit með tilkynningarskyldum aðilum

Niðurstöður úr mati FATF á aðgerðum íslenskra stjórnvalda er að vænta 18. október næstkomandi.

Stefna stjórnvalda í aðgerðum gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu og fjármögnun gereyðingarvopna.

Aðgerðaráætlun gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum