Fréttir og tilkynningar


Álagning opinberra gjalda á lögaðila 2021

29.10.2021

Skatturinn hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2021 á lögaðila og liggja niðurstöður álagningarinnar nú fyrir.

Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu við lok álagningar 2021 var 65.880 en þar af voru 48.088 skattskyld félög og sameignarfélög og 17.792 lögaðilar sem undanþegnir eru tekjuskatti. Fyrir lok álagningar höfðu 41.393 framtöl borist eða 86,08% framtala. Í fyrra höfðu 85,78% framtala borist fyrir lok álagningar. Gjöld 6.660 lögaðila voru áætluð sem er 13,85% lögaðila á skattgrunnskrá. Fyrir ári voru gjöld 14,04% lögaðila á skattgrunnskrá áætluð.

Alls voru 180.266.486.381 kr. lagðar á lögaðila í opinber gjöld sem var 9.475.926.322 kr. eða 4,99% lægri fjárhæð en lagt var á í fyrra. Þá má geta þess að 9.715.451.875 kr. voru endurgreiddar nýsköpunarfyrirtækjum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar sem var 5.354.074.154 kr. meira en var endurgreitt í fyrra. Auk þess gekk 715.656.051 kr. skattfrádráttur til nýsköpunarfyrirtækja upp í álagðan tekjuskatt þeirra (innifalið í fjárhæð tekjuskatts hér að neðan).

Skipting opinberra gjalda lögaðila 2021 er þannig:

Gjald

Fjárhæð

Breyting

Tryggingagjald 97.044.593.183 -5,05%
Tekjuskattur 69.197.031.152 1,46%
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 4.783.855.481 -56,20%
Fjársýsluskattur 3.084.591.999 -5,03%
Sérstakur fjársýsluskattur 1.872.676.754 -21,65%
Fjármagnstekjuskattur 3.426.601.597 75,19%
Útvarpsgjald 809.226.000 5,24%
Jöfnunargjald alþjónustu 47.910.215 0,85%
Samtals 180.266.486.381 -4,99%
Endurgreiðsla vegna rannsóknarkostnaðar 9.715.451.875 122,76%

Sjá skýringar á álögðum gjöldum lögaðila


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum