Fréttir og tilkynningar


Fríverslunarsamningur milli EFTA og Kólumbíu

12.11.2014

Þann 1. október 2014 tók gildi fríverslunarsamningur EFTA við Kólumbíu og tvíhliða samningur Íslands og Kólumbíu um viðskipti með landbúnaðarvörur.

Með ályktun alþingis frá 14. maí 2014 var ríkisstjórninni veitt heimild til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (Íslands, Liechtenstein, Noregs og Sviss) annars vegar og Lýðveldisins Kólumbíu hins vegar og landbúnaðarsamning milli Íslands og Lýðveldisins Kólumbíu. Samningur þessi hefur nú verið fullgiltur af samningsaðilum.

Samningaviðræður EFTA-ríkjanna við Kólumbíu tóku um eitt ár og var lokið í júní 2008.

Samningurinn inniheldur, auk ákvæða um vöruviðskipti, ákvæði um þjónustuviðskipti, fjárfestingar, hugverkaréttindi, opinber innkaup, samkeppnismál, stofnanaákvæði og ákvæði um lausn deilumála.

Samningurinn kveður á um lækkun eða niðurfellingu tolla á iðnaðarvörur, sjávarafurðir og fyrir ákveðnar óunnar- og unnar landbúnaðarvörur. Þannig munu tollar á sjávarafurðir og allar helstu iðnaðarvörur frá Íslandi falla niður frá gildistöku samningsins eða að loknu allt að tíu ára aðlögunartímabili.

Viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur falla undir landbúnaðarsamninginn og kveður hann á um að tollar á tilteknar landbúnaðarvörur verði lækkaðir eða felldir niður. Mun Kólumbía t.d. fella niður tolla á lifandi hross og ákveðnar tegundir íslensks lambakjöts og mun Ísland t.d. fella niður tolla á ýmsar tegundir grænmetis, pottablóma og ákveðinna tegunda afskorinna blóma. Landbúnaðarsamningurinn öðlast gildi sama dag og fríverslunarsamningurinn.

Samningana við Kólumbíu í íslenskri þýðingu má finna hér á vef Alþingis (pdf). Einnig má finna ítarlegar upplýsingar um samninginn á vef EFTA.

Ný tegund tolls - tollskýrslugerðarhugbúnaður og nýir tollskrárlyklar vegna innfluttra vara

Vegna fríverslunarsamningsins öðlaðist ný tegund tolls gildi þann 1. október 2014. Lykill fyrir tegund tollsins er YD.

Landlykill fyrir upprunavöru sem fríverslunarsamningurinn nær til:

  • CO Kólumbía

Tollskýrslugerðarhugbúnaður: Stofna þarf nýja tegund tolls, YD kóda fyrir Kólumbíu, í töflu tegunda tolla og landakódi á YD tolli skal vera: CO.

Útfylling aðflutningsskýrslu/útflutningsskýrslu

Þegar óskað er eftir fríðindameðferð við innflutning samkvæmt nefndum samningi skal færa lykilinn YD fremst í reit 33 við gerð aðflutningsskýrslu (E-1) eða vegna SMT- eða VEF-tollafgreiðslu. Í reit 8 og 34 skal tilgreina landalykil viðkomandi ríkis, CO fyrir Kólumbíu. Í reit 14 skal tilgreina skammstöfunina EUR og númer EUR. 1 flutningsskírteinis (t.d. EUR 1234567) eða textann "EUR YFIRLÝS" ef upprunayfirlýsing er á vörureikningi.

Ný útgáfa af tollskrárlyklum vegna innflutnings, þar sem YD tegund tolls hefur verið skráð á öll viðkomandi tollskrárnúmer vegna innflutnings, er nú aðgengileg á vefsíðu tollskrárlykla á vef Tollstjóra. Nýja útgáfan gildir afturvirkt frá 1. október 2014.

Þegar óskað er eftir fríðindameðferð við útflutning samkvæmt nefndum samningum skal færa lykilinn EX í reit 1 (markaðssvæði) við gerð útflutningsskýrslu (E2) eða vegna SMT- eða VEF-tollafgreiðslu. Í reit 17, ákvörðunarland, skal tilgreina landalykil viðkomandi ríkis. Ákvörðunarland er endastöð vöruflutninganna. Í reit 34a, upprunaland, skal skrá IS, ef íslensk upprunavara, en landalykil Kólumbíu (CO) ef þarlend upprunavara, áður flutt beinum flutningi til Íslands, er að fara aftur til Kólumbíu. Færa skal í reit 44 þriggja bókstafa skammstöfun fyrir skírteinið EUR, bókstafinn A og númer þess þar fyrir aftan (dæmi: EURA123456) en orðið: YFIRLÝSING ef upprunayfirlýsing er gefin á vörureikningi.

Að öðru leyti vísast til bæklinga um tollskýrslugerð vegna innflutnings og útflutnings.

Nánari upplýsingar

Í VEF-tollskránni á vef Tollstjóra er unnt að sjá hvort YD tegund tolls, tollfríðindameðferð skv. fríverslunarsamningnum, er valkostur á tollskrárnúmeri.



Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum