Fréttir og tilkynningar


Nýir reitir í staðgreiðsluskilum - leiðbeiningar

13.2.2017

Frá og með staðgreiðsluskilum vegna launa í janúar 2017 óskar ríkisskattstjóri eftir ítarlegri upplýsingum fyrir hvern launamann frá launagreiðendum.  

Þeir sem skila staðgreiðslu í gegnum þjónustuvef RSK þurfa að athuga að við hvern og einn launamann eru fjórir nýir reitir sem þarf að fylla út eftir atvikum, tveir vegna persónuafsláttar og tveir vegna skattþrepa. Þá þurfa sjálfstætt starfandi einstaklingar ekki lengur að haka við reiknað endurgjald þegar staðgreiðslu er skilað inn. Hér að neðan er að finna leiðbeiningar fyrir þessa nýju reiti sem og dæmi um útfyllingu.

Persónuafsláttur

Skrá á þá fjárhæð persónuafsláttar sem til frádráttar kom þegar staðgreiðsla var reiknuð út. Hafi launamaður nýtt persónuafslátt maka skal skrá þá fjárhæð í þar til gerðan reit. Reitina má skilja eftir auða hafi persónuafsláttur ekki verið nýttur.

Skattstofn – skattþrep

Skattstofn er fundinn út með því draga iðgjald launamanns í lífeyrissjóð og séreignarsjóð (ekki mótframlag) frá launafjárhæð.  Ekkert þarf að færa í reitinn „þ.a. stofn í þrepi 2” nema skattstofn í þrepi 1 fari yfir 834.707.-. Þá skal færa það sem umfram er í reit „þ.a. stofn í þrepi 2”. 

Dæmi um útfyllingu 1


Leiðbeiningar um hvernig skal fylla út skilagrein staðgreiðslu miðað við að laun séu 200.000 á mánuði

Dæmi um útfyllingu 2


Leiðbeiningar um hvernig skal fylla út skilagrein staðgreiðslu miðað við að laun séu 200.000 á mánuði Launagreiðendur sem skila staðgreiðsluupplýsingum með rafrænum hætti í gegnum launakerfi verða að ganga úr skugga um að þeir séu með uppfærða útgáfu launakerfa svo þessar viðbótarupplýsingar skili sér. 

Allar nánar upplýsingar veitir þjónustuver RSK í netspjalli eða í síma 442 1000.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum