Fréttir og tilkynningar


Rúmlega 40 sendingar haldlagðar

24.6.2015

Rúmlega 40 mál komu upp hér á landi fyrr í mánuðinum í alþjóðlegri aðgerð gegn fölsuðum og ólöglegum lyfjum sem seld eru á netinu. 

Embætti Tollstjóra og Lyfjastofnun tóku sameiginlega þátt í aðgerðinni og nutu atbeina ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu embættisins hjá Europol við framkvæmd verkefnisins hér.

Í aðgerðinni, „Pangea VIII“ sem var á vegum WCO (World Customs Organisation), Europol og Interpol, var lagt hald á samtals 43 sendingar. Aðallega var um að ræða nikótínvökva og var heildamagnið á fimmta lítra. Í tengslum við aðgerðina var jafnframt lagt hald á 28 sendingar með fæðubótarefnum sem innihéldu lyfjavirk efni eða jurtir með lyfjavirkni. Þær höfðu m.a. að geyma örvandi efni, hormóna, grenningarefni og „detoxunarefni“.

Samtals tóku 115 lönd þátt í aðgerðinni, sem er sú stærsta sinnar tegundar til þessa. Markmiðið var að kortleggja skipulagða glæpastarfsemi að baki falsaðra og ólöglegra lyfja á netinu og voru alls 156 handteknir. Haldlögð voru ólögleg og hættuleg lyf að andvirði 81 milljón Bandaríkjadala. Þá var 2.414 vefsíðum sem buðu slíkan varning til sölu lokað.

Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að hálfu embættis Tollstjóra þar sem umrædd mál eru enn í vinnslu.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum