Skráning á gistináttaskattsskrá
Gistináttaskattur kom aftur til framkvæmda frá og með 1. janúar 2024 og ber því að innheimta gistináttaskatt og standa skil á honum í ríkissjóð vegna sölu á gistiaðstöðu að nýju.
Ríkisskattstjóri vekur athygli á að hverjum þeim sem
skattskyldur er samkvæmt lögum um gistináttaskatt ber að tilkynna starfsemi
sína til skráningar á gistináttaskattsskrá.
Opnað hefur verið fyrir tilkynningar um gistináttaskattsskylda starfsemi sem skilað skal með rafrænum hætti á þjónustuvef Skattsins.
Opna skráningu á þjónustuvef Skattsins
Upplýsingar sem þarf að gefa upp við skráningu
Á tilkynningu um gistináttaskattsskylda starfsemi skal tilgreina:- upphafsdag starfsemi
- lokadag starfsemi (ef við á)
- fjölda gistirýma sundurliðað eftir tegund gistiaðstöðu
Skráning og endurskráning
Athugið að öllum gistináttaskattsskyldum aðilum ber nú að tilkynna starfsemi sína til skráningar á gistináttaskattsskrá, bæði nýjum aðilum og þeim sem voru skráðir á gistináttaskattsskrá fyrir tímabundna brottfellingu skattsins þann 1. apríl 2020.
Uppgjörstímabil
Uppgjörstímabil gistináttaskatts í tilviki virðisaukaskattsskyldra aðila eru tveir mánuðir: janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv.
Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Gjalddagi vegna uppgjörstímabilsins janúar-febrúar 2024 er 5. apríl 2024.
Nánari upplýsingar um gistináttaskatt
Eins má spyrja spjallmenni Skattsins hérna neðst í hægra horninu.