Fréttir og tilkynningar


Varað við endurteknum vefsvikum

15.7.2022

Enn á ný er herja netþrjótar á fólk í nafni Skattsins í þeim tilgangi að hafa af því peninga eða fjárhagsupplýsingar.

Fólk er beðið um að sýna ítrustu varúð og gefa ekki upp upplýsingar sé minnsti grunur um að eitthvað vafasamt gæti verið á ferðinni.

Einkenni netsvika í tölvupósti eru gjarnan:

Málvillur og einkennilegt málfar
Tilkynning um inneign eða skuld sem þú áttir ekki von á
Skuld eða inneign ekki greidd eftir hefðbundnum traustum leiðum
Óskað eftir kortanúmeri eða öðrum fjárhagsupplýsingum strax.
Svindl eru þó oft sannfærandi og einkenni og trúverðugleiki þekktra fyrirtækja og stofnana eru notuð til að blekkja. 

Gott ráð er að smella aldrei á hlekki í tölvupóstum sem berast, hvort sem grunur um netsvik er til staðar eða ekki. Betra er að opna nýjan vafraglugga og finna vefsíðu stofnunarinnar eða fyrirtækisins upp á eigin spýtur.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum