Virðisaukaskattur af viðburðum í streymi
Ríkisskattstjóri hefur gefið út sérstakt álit í tilefni fyrirspurna sem borist höfðu um hvort skylt sé að innheimta virðisaukaskatt við sölu aðgangs að t.d. tónleikum eða leiksýningum sem streymt er beint í sjónvarp, tölvu, síma eða annað snjalltæki kaupanda.
Lesa ákvarðandi bréf í heild sinni
Í álitinu kemur fram að streymisþjónusta sé almennt virðisaukaskattsskyld hérlendis jafnt sem erlendis. Einnig kemur fram að hérlendis sé aðgangseyrir að tónleikum, leiksýningum, listdanssýningum og leikhúsum undanþeginn virðisaukaskatti. Í álitinu er komist að þeirri niðurstöðu „að þegar seldur er sérstaklega aðgangur að tónleikum, listdanssýningum og leiksýningum sem streymt er beint, þ.e. í rauntíma“, geti slík sala talist undanþegin virðisaukaskatti.
Á hinn bóginn teldist sala aðgangs að upptökum af þessum viðburðum virðisaukaskattsskyld. Tekið skal fram að það á t.a.m. við um aðgengi að viðburði um streymi í ákveðinn tíma eftir að honum lýkur eða gegnum svokallað tímaflakk, enda er í slíkum tilvikum ekki um að ræða viðburð sem streymt er beint, þ.e. í rauntíma.